Flott högg með 5-trénu skilaði boltanum í holu hjá Jónínu í Portúgal
Jónína Magnúsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Sandgerðis gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi þegar hún var við leik með eiginmanni og vinahjónum á Gramacho golfvellinum í Portúgal.
Jónína reif upp 5-tréð á 10. holu og hitti boltann vel sem sveif inn á flöt og ofan í holu.
Þetta er í fyrsta skipti sem Jónína fer holu í höggi en hún fékk golfbakteríuna fyrir nokkrum árum. Jónína sem er mannauðsstjóri Blue Car rental og hefur verið í framlínu í bæjarpólitíkinni í Suðurnesjabæ í nokkurn tíma en heyrst hefur að hún ætli að einbeita sér meira að golfíþróttinni á næstunni. Hún og Guðni maður hennar eru félagar í Golfklúbbi Sandgerðis og spila mikið golf þar.

Það er hefð að skála fyrir draumahöggi. Guðni bauð upp á draumahöggdrykk.

Jónína með Guðna eiginmanni sínum og vinahjónunum Laufeyju og Vilhjálmi.


