Sló fyrsta hringinn með rétthendri sjö-u en er snarörvhentur
Hjálmar Jens Sigurðsson er Reykvíkingur en býr í dag á Hornafirði og starfar þar sem sjúkraþjálfari. Hann er giftur og á þrjú börn. Fyrir utan golfið er hann mikill áhugamaður um körfuknattleik og var lengi í stjórn körfuknattleiksdeildar Sindra og eins var hann körfuknattleiksdómari. Hann dreymir um að þræða strandlengjur Írlands, spila golf og taka einn ferskan Guinnes á eftir, hugmyndina fékk hann eftir að hafa lesið bókina A Course Called Ireland: A Long Walk in Search of a Country, a Pint, and the Next Tee eftir Tom Coyne.
Hjálmar er kylfingur dagsins.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Spilaði í fyrsta skipti golf úti á Tælandi árið 2002, alvöru golfvöllur og allir með „kaddý“. Sló heilan hring með 7 járni og áttaði mig á því að það væri kannski sniðugt að prófa kylfur fyrir örvhenta næst þar sem ég er alveg snarörvhentur. Flutti ekki löngu síðar á Hornafjörð, skráði mig í klúbbinn og byrjaði á fullu sumarið 2004 og þá réttum megin.
Helstu afrek í golfinu?
Að koma konunni í golf og fara tvisvar holu í höggi. Einu sinni á gömlu „brjóstunum“ eða nánar tiltekið 5. holu á gamla Silfurnesvellinum og svo á 2. holu á sjálfu Silfurnesinu.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Að „shanka“ högg í golfbíl nánast við hliðina á mér.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Án efa Venni „Páer“, við höfum átt margar skemmtilegar rimmur á golfvellinum og þá sérstaklega í Fimmta risamótinu.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Nei, meira svona vanafastur.
Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?
Þarf að afslæsa fimm og þrjú tré á braut.
Aldur: 49
Klúbbur: Golfklúbbur Hornafjarðar
Forgjöf: 12,3
Uppáhaldsmatur: Nautalund og Bernease
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og G&T
Uppáhaldskylfingur: Hovland
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Silfurnesvöllur, Druids Glen (Írlandi) og Öndverðanes.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 2.holan á Silfurnesinu, getur gefið vel og refsað grimmilega, hér notar maður allt frá Pw og upp í 5 járn í upphafshögginu. 16. holan á Jaðri, fallleg hola þar sem gott útsýni er af teignum sem er vel fyrir ofan brautina. 8. holan á Öndverðanesinu, nóg pláss í drævinu en snúið annað högg.
Erfiðasta golfholan: 3. holan á Silfurnesinu oft ansi erfið ef upphafshöggin eru ekki inni og á móti blæs.
Erfiðasta höggið: Upphafshöggið á 9. á Silfurnesinu, þröngt lendingasvæði í dræverlengd og ansi margir boltar sem lenda í tjörninni.
Ég hlusta á: Í tónlist er 90´s alternative alltaf fyrsta val og svo auðvitað á konuna.
Besta skor: 77 (+5) á Hlíðardalsvelli í Mosó í sumar
Besti kylfingurinn: Tigerinn
Golfpokinn:
Big Max Aqua hybrid
Dræver: Ping G400
Brautartré: Callaway Epic
Járn: Ping G410
Fleygjárn: Ping Glide 3
Pútter: Ping Sigma 2
Hanski: Footjoy
Skór: Ecco Golf Biom