Fréttir

Þriðja draumahöggið hjá Sigurjóni
Miðvikudagur 22. nóvember 2023 kl. 16:32

Þriðja draumahöggið hjá Sigurjóni

Sigurjón Georg Ingibjörnsson, kylfingur úr Sandgerði gerði sér lítið fyrir og náði þriðja draumahögginu sínu á 15. brautinni á Kirkjubólsvelli í Sandgerði nýlega. Sigurjón var með góðum félögum úr Golfklúbbi Sandgerðis við golfleik í haustblíðu sem hefur verið mikil. Hann var með 7-járnið.

Fyrri draumahögg Sigurjóns voru á 2. braut í Sandgerði og á hinni flottu 15. braut á Hvaleyrinni.