Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Seinni hringurinn hjá Finni skilaði honum sigri á Artic mótinu
Miðnætursólin skartaði sínu fegursta á föstudagskvöldinu.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 29. júní 2025 kl. 22:18

Seinni hringurinn hjá Finni skilaði honum sigri á Artic mótinu

Það var hart barist um sigurinn á Artic Open mótinu á Jaðarsvelli en Finnur Mar Ragnarsson sigraði en hann og Valgeir Bergmann Magnússon voru jafnir með 81 punkt en Finnur var betri á seinni hringnum og það skilaði honum titlinum.

280 kylfingur mættu til leiks og léku í þessu eina elsta móti landsins en Artic mótið fagnar 40 ára afmæli á næsta ár. Í ár voru 36 erlendir keppendur og komu þeir frá átta löndum.

Artic mótið er miðnæturmót og lét sólin sjá sig á föstudagskvöldinu og sendi geisla sína yfir Jaðarsvöll.

Örninn 2025
Örninn 2025

Að vanda var glæsilegt lokahóf með glæsilegum kvöldverði og verðlaun afhent.

Hér má sjá lista yfir verðlaunahafa í mótinu í ár:
Nándarverðlaun:
Fimmtudagur - 
4.hola: Úlfar Biering 114cm
8.hola: Guðmundur Gíslason 118cm
11. hola: Einar Viðarsson 86cm
14. hola: Kristófer Einarsson 155cm
18. hola: Sævar Guðmundsson 101cm

Föstudagur - 
4.hola: Ottó Hólm Reynisson 23cm
8.hola: Sæbjörg Guðjónsdóttir 144cm
11. hola: Björn Óskar 164cm
14.hola: Ingi Steinar Ellertsson 72,5cm
18.hola: Sæbjörg Guðjónsdóttir 29cm

Punktakeppni m/forgjöf - Arctic Open meistari
1.sæti: Finnur Mar Ragnarsson 81 punktur (betri seinni 18)
2.sæti: Valgeir Bergmann Magnússon 81 punktur
3.sæti: Halldór Guðmann Karlsson 78 punktar

Höggleikur án forgjafar
1.sæti: Ingi Steinar Ellertsson 145 högg
2.sæti: Víðir Steinar Tómasson 146 högg
3.sæti: Tumi Hrafn Kúld 147 högg

Höggleikur án forgjafar 55+ karlar
1.sæti: Guðmundur Sigurjónsson 156 högg
2.sæti: Bogi Nils Bogason 158 högg
3.sæti: Jón Þór Gunnarsson 160 högg

Höggleikur án forgjafar konur
1.sæti: Anna Jódís Sigurbergsdóttir 165 högg
2.sæti: Unnur Elva Hallsdóttir 175 högg
3.sæti: Halla Berglind Arnarsdóttir 179 högg.

Finnur Mar Ragnarsson er Artic Open meistari 2025.