Lá við að brestir kæmu í hjónabandið
Logi búinn að vera nálægt draumahögginu margsinnis á rúmlega 30 ára löngum golfferli
Logi Bergmann er kunnur fjölmiðlamaður og hefur undanfarna mánuði haldið út hlaðvarpsþættinum Seinni níu ásamt Jóni Júlíusi Karlssyni. Logi hefur verið í golfi í u.þ.b. 35 ár og oft verið nærri draumahögginu en fólk fær víst ekki inngöngu í Einherjaklúbbinn fyrir að vera nálægt því að fara holu í höggi.
Eiginkona Loga er Svanhildur Hólm Valsdóttir en hún er líka þekkt fjölmiðakona en gegnir í dag stöðu sendiherra Íslands í Bandaríkjunum síðan á síðasta ári. Svanhildur er nýlega byrjuð í golfi en er samt búin að ná því sem Logi segist smeykur um að ná aldrei.
Draumahöggið kom í Bandaríkjunum, n.t. í Washington þar sem hjónin búa í dag.
„Þetta er auðvitað algerlega fáranlegt en það er bara eins og það er. Ég er búinn að missa tölu á öllum þeim skiptum sem ég hef verið nálægt, hef krækt, boltinn hefur farið í stöngina, staðnæmst nokkra sentimetra en aldrei hefur kúlan viljað fara ofan í. Svanhildur er nýlega byrjuð í golfi og á u.þ.b. sjötta hring sem hún spilaði, virtist hún ætla ná draumahögginu, við horfðum á eftir boltanum en hann staðnæmdist stutt frá holunni. Á meðan þetta var að gerast sagði ég við Svanhildi að ég myndi skilja við hana ef hún færi holu í höggi á undan mér!
Svo gerðist það um daginn þegar Jón Júlíus og Gunnar Úlfarsson voru í heimsókn hjá okkur, að Svanhildur sló fallegt högg með sjö-unni sinni á braut 2 sem er 135m löng. Boltinn sveif, lenti og rúllaði ofan í og við ætluðum varla að trúa okkar eigin augum. Svo því sé haldið kyrfilega til haga þá samgladdist ég innilega með konunni minni og það komu engir brestir í hjónabandið, það var sagt í tómu gríni. Þetta sýnir okkur einfaldlega fegurðina í þessum stórkostlega leik, það skiptir engu máli hversu góður kylfingurinn er, allir geta náð þessu því sólin skín stundum líka á hundsrass. Ég hef margoft orðið vitni að þessu, síðast fyrir stuttu hér í Bandaríkjunum, spilaði þá með Kana sem tók upp hybrid-fjögur kylfu og boltinn rúllaði nánast eftir allri brautinni og endaði ofan í holunni! Þetta er nánast farið að leggjast á sálinni á manni, að ná ekki draumahögginu því mér finnst ég varla geta opnað fjölmiðil nema einhver sex ára hafi náð þessu eða hinn eða þessi! Maður verður samt að halda í trúna, ef hún er ekki til staðar þá gerist þetta væntanlega aldrei svo ég ætla að vera brattur og segi að þetta gerist á þessu ári.“
Byrjaði í golfi út frá vinnunni sem blaðamaður
Logi sýndi golfi ekki mikinn áhuga og það var ekki fyrr en hann vann sem blaðamaður á Mogganum og þurfti að fjalla um íþróttina, sem smá áhugi kviknaði.
„Um 1990 var mér gert að taka við af Skúla Unnari Sveinssyni, sem var golfsérfræðingur Moggans og þá kviknaði smá áhugi og ég byrjaði eitthvað að fikta. Ég hafði samt ekki nægan tíma, var að hlaða niður börnum svo það var ekki fyrr en árið 2004 sem byrjaði af einhverjum krafti. Við stofnuðum golfhópinn Stullarnir og síðan þá hef ég ekki litið til baka má segja og er með rúma 9 í forgjöf í dag. Ég veit hversu gott áhugamál þetta er fyrir hjón og pör að eiga, þess vegna hef ég legið í Svanhildi árum saman að skella sér líka í golfið en hún sýndi því engan áhuga og hvatti mig bara til að spila golf að vild. Ég var því hættur að suða í henni svo það kom að því að hún spurði mig hvort ég væri hættur að bjóða henni í golf og við höfum átt þetta áhugamál saman í tvö ár og brosum bæði hringinn. Hún hafði eitthvað prófað þegar hún var yngri svo hún var ansi fljót að ná tökum - eins og sést nokkuð greinilega m.v. draumahöggið,“ sagði Logi að lokum.