Kyriacou sigraði á Evrópumótaröð kvenna
Stephanie Kyriacou tvítugur ástralskur kylfingur fór með sigur úr býtum á Big Green Egg Open mótinu sem lauk fyrr í dag. Kyriacou lék hringina fjóra á samtals 18 höggum undir pari. Hennar annar sigur á Evrópumótaröð kvenna.
Finnski kylfingurinn Sanna Nuutinen kom næst á eftir á 16 höggum undir pari. Þær tvær voru í nokkrum sérflokki því Kylie Henry frá Skotlandi endaði í þriðja sæti á 10 höggum undir pari.
Frábær helgi að baki hjá áströlskum kylfingum því auk Kyriacou sigraði Cam Davis á PGA mótaröðinni og Lucas Herbert á Evrópumótaröð karla.


