Fréttir

Gunnlaugur valinn í lið Evrópu gegn Asíu/Eyjaálfu
Laugardagur 30. nóvember 2024 kl. 12:59

Gunnlaugur valinn í lið Evrópu gegn Asíu/Eyjaálfu

Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG, hefur verið valinn í lið Evrópu í Bonnallack Trophy. 12 bestu áhugakylfingar Evrópu mæta 12 bestu áhugakylfingum Asíu/Eyjaálfu en mótið fer fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 8.-10. janúar. Þetta kemur fram á vef GSÍ.

„Það er mikill heiður að vera valinn að spila fyrir hönd Íslands og Evrópu í þessu móti og mjög gaman að sjá þessa miklu vinnu skila sér,“ sagði Gunnlaugur Árni. 

Gunnlaugur Árni er fyrsti íslenski kylfingurinn sem fær boð í Bonallack Trophy. Hann leikur fyrir LSU háskólann í Bandaríkjunum og átti árangur hans í háskólagolfinu í haust stóran þátt í að vera valinn í liðið þar sem hann hefur náð besta árangri allra nýliða í NCAA deildinni. Gunnlaugur Árni sigraði á sterku háskólamóti og lenti í öðru sæti í öðru móti. Hann hefur að undanförnu rokið upp heimslista áhugakylfinga og er nú í 134. sæti á listanum. 

„Það er búið að vera mjög gaman og góð breyting að koma hingað út, það hefur hjálpað mikið hvað fólkið hérna úti hefur komið mér fljótt inn í hlutina. Hér er frábær umgjörð og mikið lagt í að láta öllum líða vel. Ég er ótrúlega þakklátur fjölskyldu minni, þjálfurum og öllu því frábæra fólki í kringum mig. Þau hafa veitt mér rosalega mikinn stuðning sem hefur skilað því að ég mætti mjög vel undirbúinn fyrir háskólagolfið,“ sagði Gunnlaugur Árni.

Meðal kylfinga sem hafa tekið þátt í mótinu eru Justin Rose, Francesco Molinari, Rory McIlroy, Jon Rahm og Shane Lowry fyrir Evrópu og Hideki Matsuyama og Cameron Smith fyrir Asíu/Eyjaálfu. 

Mótið fer fram annað hvert ár, en árið 2010 var mótinu í Indlandi þó aflýst vegna eldgossins í Eyjafjallajökli þar sem gosaska dreifðist um alla Evrópu og olli miklum truflunum á flugumferð.

Nánari upplýsingar um mótið má sjá hér:

https://www.ega-golf.ch/content/european-teams-finalised-ahead-bonallack-patsy-hankins-trophies