Glæsilegur Hlíðavöllur í haustblíðu
Golfvellir landsins hafa tekið á sig haustlit og einhverjir hafa lokað fyrir golfleik þó margir hafi verið opnir lengur í ár í mikilli haustblíðu.
Þessar mögnuðu myndir voru teknar nýlega yfir Hlíðavelli í Mosfellsbæ einn fallegan haustmorgun.
Hlíðavöllur hefur breyst mikið á síðasta áratug og aðstæður allar í klúbbnum, m.a. Eftir sameiningu tveggja klúbba í bæjarfélaginu.
Meðfylgjandi myndir og video sýna Hlíðavöll skarta sínu fegursta á þessum árstíma, í blankalogni, haustsól og skýin hvíla yfir sjónum.







