Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Fín frammistaða hjá Sigurði og Aroni í Danmörku
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 30. maí 2025 kl. 14:16

Fín frammistaða hjá Sigurði og Aroni í Danmörku

Aron Júlíusson og Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG stóðu sig vel Smörum mótinu á Nordic mótaröðinni sem lauk í dag á Smörum golfvellinum í Danmörku. Aron endaði jafn í 22. sæti á fimm undir pari en Sigurður á fjórum undir og var jafn í 31. sæti. David Nyfjall frá Svíþjóð vann á -17.

Sigurður er í 31. sæti stigalistans og hefur keppt í tólf mótum á árinu. Besti árangur hans er 6. sæti í síðustu viku, hann hefur tvisvar verið í 10. sæti og tvisvar í 13. sæti. Hann hefur þrívegis ekki komist í gegnum niðurskurðinn.

Aron er í 33. sæti á stigalista mótaraðarinnar en hann hefur tekið þátt í fimm mótum í vor og verið tvívegis í 3. sæti. Fimm efstu á listanum í haust fá þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni í Evrópu.

Örninn 2025
Örninn 2025

Aron Bergsson var einnig meðal þátttakenda en komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fimm yfir pari.