Bjarni Fritzson hefur upplifað ýmislegt á golferlinum
Bjarni í viðtali í hlaðvarpsþættinum Seinni níu hjá Loga Bergmann og Jóni Júlíusi Karlssyni
Handboltaþjálfarinn, fyrirlesarinn og rithöfundurinn Bjarni Fritzson er gestur vikunnar í Seinni níu. Bjarni var mjög öflugur handboltamaður og hefur síðustu ár þjálfað karlalið ÍR. Hann er einnig rithöfundur en barnabækur hans um Orra óstöðvandi hafa notið gríðarlegra vinsælda.
Bjarni er með um 15 í forgjöf og er kominn með mikla golfdellu. Hann er bæði meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur og hjá Golfklúbbi Grindavíkur, geri aðrir betur.
Bjarni taldi sig eiga auðvelt með að ná tökum á golfíþróttinni þar sem hann hafði verið teknískur hornamaður í handbolta með góða úlnliðstækni. Hann segir frá draumahögginu sem hann sló í Kiðjabergi, segir aðeins frá golfhópnum „Tipsy“ og einnig þegar hann sló í áttræða konu í Frakklandi. Helsti draumur Bjarna í golfinu er að ná allri fjölskyldunni sinni með sér í íþróttina.
Bjarni velur fimm erfiðustu golfholurnar sem hann leikur á Íslandi og einnig draumahollið.
Frábært spjall um golf og ýmislegt fleira við þennan stórskemmtilega kylfing sem vill helst spila golf með örvhentum.