Valdís með vallarmet í svaka einvígi við Ólafíu
Valdís Þóra Jónsdóttir frá Akranesi lék glæsilegt golf á þriðja keppnisdegi, setti nýtt vallarmet á Jaðri á Akureryi og leiðir Íslandsmótið fyrir lokadaginn með einu höggi. Hún háir svakalegt einvígi við Ólafíu Þ. Kristinsdóttur úr GR en þær stöllur eru 7 og 6 undir pari. Skor sem hefur ekki sést í íslensku kvennagolfi.
Kylfingur.is fylgdisti með Valdísi á þriðjda keppnisdegi á nokkrum brautum, myndaði hana og ræddi við Skagastelpuna eftir hringinn.