Þriðjudagur 10. mars 2015 kl. 08:04

Trump reif ekki hár sitt yfir kylfukastinu hjá Rory

Donald Trump reif ekki hár sitt yfir kylfukastinu hjá Rory McIlroy á Doral vellinum um helgina. Trump er eigandi vallarins og hann var ánægður með að besti kylfingur heims væri ósáttur á Blue Monster vellinum. „Ég ræddi við Rory og ég sagði að þetta hefði verið frábært. Hann sýndi tilfinningar og kastið var hárnákvæmt – hann gerði þetta eins og hann er vanur að spila golf.“

Trump var ekki sáttur við uppsetninguna á vellinum á fyrsta keppnisdeginum þar sem J.B. Holmes lék á 62 höggum eða -10. Trump sagði að vallarstarfsmenn hafi óttast að gera völlinn of erfiðan fyrir 50 bestu kylfinga heims. „Ég mótmælti uppsetningunni en það hafði engin áhrif. Ég vildi að völlurinn yrði erfið prófraun og ég held að þau skilaboð hafi komist til skila að lokum,“ sagði Trump.  

 

p>