Þrefaldur risamótsmeistari klúðraði þessu höggi með sæmd
Padraig Harrington er úr leik á Waste Management meistaramótinu á PGA mótaröðinni í Phoenix. Írinn lék á 78 höggum á öðrum keppnisdeginum og endaði á +7 samtals. Það dugði ekki til og Harrington lenti í ýmsum vandræðum á hringnum.
Hann reyndi m.a. að slá „örvhent“ á 18. brautinni á TPC Scottsdale í Phoenix. Eins og sjá má var hugmyndin fín en niðurstaðan ömurleg. Það taldi ekkert í þessu höggi að Harrington hefur sigrað á þremur risamótum og 13 atvinnumótum samtals.
Harrington gæti leitað eftir ráðleggingum frá Rickie Fowler sem getur leikið sér að því að slá „örvhent“ eins og sjá má í þessu myndbandi.