Þórður í sveifluvandræðum í 2. hring en hélt haus - ætlar að spila ákveðið
Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sveiflaði kylfunum ekki eins vel á öðrum keppnisdegi en hann var með forystu eftir fyrsta daginn á fimm undir pari. Hann er jafn í öðru sæti en segist ætla að leika „aggressíft“ golf og gera atlögu að Íslandsmeistaratitlinum í höggleik á Garðavelli á Akranesi. Páll Ketilsson ræddi við Þórð eftir annan hringinn á Akranesi.