Sunna með nýjar kylfur og segist komin til að sigra
Sunna Víðisdóttir segist vera komin á Garðavöll á Akranesi til að sigra á Íslandsmótinu í höggleik. Hún er með nýtt golfsett, er afar sátt við aðstæður og Garðavöllur sé einn af sínum uppáhaldsvöllum. Hún er með fjögurra högga forskot á Signýju Arnórsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur. Páll Ketilsson ræddi við Sunnu eftir annan hring á mótinu.