Rory missti stjórn á skapi sínu – kastaði kylfu í vatn
Rory McIlroy missti stjórn á skapi sínu í gær á öðrum keppnisdegi á heimsmótinu sem fram fer á Trump National Doral. Norður-Írinn sló annað höggið á 8. braut í vatnstorfæru og hann notar þá kylfu ekki aftur. McIlroy dúndraði kylfunni langt út í vatnið og var alls ekki sáttur við höggið en kastið var samt sem áður öflugt og fer í flokk með þeim eftirminnilegustu. McIlroy fékk skolla (+1) á holuna en kylfukastið er án efa á norðurírskt met.