Reed ætlar í hart við höfund bókar – stal ekki né svindlaði
Patrick Reed ætlar að fara fram á að kafli úr bók verði ekki birtur þar sem honum er gefið að sök að hafa stolið fjármunum og svindlað í golfi á háskólaárum sínum í Georgíu. Í bókinni „Slaying the Tiger“ sem er skrifuð af Shane Ryan er því haldið fram að bandaríski kylfingurinn hafi stolið verðmætum pútter, reiðufé og svindlaði í undankeppni fyrir háskólamót.
Reed ræddi um þetta mál í viðtali um síðustu helgi og má sjá brot af því hérna fyrir neðan.