Sunnudagur 26. júlí 2015 kl. 20:07

Ótrúlegt lokahögg Þórðar á Íslandsmótinu - Video

Þórður Rafn Gissurarson endaði Íslandsmótið í höggleik á Akranesi með stæl, vægast sagt. Hann sló hér um bil ofan í holu á lokabrautinni, 18. holu sem er par 3, um 140 metrar. „Ég miðaði bara beint á pinnann og gaman að það skyldi lukkast svona vel,“ sagði Þórður Rafn við kylfing.is í sæluvímu eftir sigurinn á Akranesi í dag.