GolfTV: Tiger leitaði ráða á æfingasvæðinu og sjankaði
Tiger Woods hefur ekki verið með sjálfstraustið í botni undanfarnar vikur hvað stutta spilið varðar í golfinu. Bandaríkjamaðurinn hefur á tveimur síðustu mótum verið í tómu tjóni í kringum flatirnar og á Waste Management mótinu um síðustu helgi sló hann mörg mjög léleg vipphögg.
Woods hefur leik í dag á Farmers meistaramótinu á PGA mótaröðinni og verður spennandi að fylgjast með hvernig honum gengur. Woods var á æfingasvæðinu á Torrey Pines í gær og þar óskaði hann eftir ábendingum frá kylfingunum Pat Perez og Billy Horschel – en Chris Como þjálfarinn hans var einnig á svæðinu. Eins og sjá má á þessu myndbandi þá „sjankaði“ Woods eitt af þessum höggum illilega og það gæti kannski aukið sjálfstraustið hjá þeim sem þetta lesa. Þeir bestu geta líka sjankað.