Laugardagur 13. nóvember 2010 kl. 09:14

GolfTV: Thatcher magnaður í Flórída

Kylfingurinn Roland Thatcher er að undirbúa sig fyrir úrtökumót fyrir PGA-mótaröðina. Eftir helgina gæti hann hins vegar sloppið við að fara í mótið því hann er kominn í efsta sætið á Children‘s Miracle Network Classic mótinu sem fram fer í Flórída. Hann gantaðist meira segja með kollegum sínum að þetta mót væri fínt æfingamót fyrir úrtökumótið.

Nú er það markmið breytt,“ sagði Thatcher eftir að hafa leikið á 63 höggum eða níu höggum undir pari og hefur fjögurra högga forystu á Chris Stroud og Brian Gay. Thatcher, sem er áhugmaður vonast til að mótið fái alvöru öskubuskuenda. Hann er efstur á 16 höggum undir pari eftir að hafa leikið frábærlega á fyrstu tveimur hringjunum.

Það væri ekki leiðinlegt ef mótið fengi öskubuskuenda. Þetta var fullkominn hringur og það var varla hægt að leika betur,“ sagði þessi 33ja ára gamli kylfingur. Margir kylfingar berjast um að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni og því er mikið undir í Flórída.

Staðan í mótinu