GolfTV: Thatcher í frábærri stöðu fyrir lokahringinn í Flórída
Bandaríski kylfingurinn Roland Thatcher er aðeins 18 holum frá því að tryggja sér keppnisrétt á PGA-mótaröðinni til næstu tveggja ára. Þessi 33ja ára kylfingur hefur fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn í Chrildren‘s Miracle Network Classic mótið sem fram fer í Flórída.
Hann er eins og staðan er núna í 179. sæti á tekjulistanum og ekkert annað en sigur í mótinu kemur í veg fyrir að hann fari í úrtökumót um áframhaldandi keppnisrétt á mótaröðinni. Annað sætið dugar ekki.
Hann er samtals á 18 höggum undir pari í mótinu en næstur er Chris Stroud á 14 höggum undir pari. Thatcher hafði reyndar sex högga forystu þegar skammt var eftir en tapaði þremur höggum á tveimur síðustu holunum. Alls eru fjórir kylfingar jafnir í 3. sæti og því gæti orðið nokkur barátta um sigurinn á morgun. Thatcher er með örlög sín í eigin höndum en það er spurning hvort hann standist pressuna.