Laugardagur 24. janúar 2015 kl. 00:30

GolfTV: Skyggnst bak við tjöldin við framleiðslu Titleist ProV1

Það er mikil vinna sem liggur á bak við golfbolta sem kylfingar nota víðsvegar um heiminn. Vörurnar eru þróaðar af vísindamönnum í fremstu röð og allt er gert til þess að auka ánægju þeirra sem nota golfboltann. Í myndbandinu hér fyrir neðan útskýra sérfræðingar frá Titleist hvaða „pælingar“ liggja að baki á nýjustu framleiðslu fyrirtækisins á hinum gríðarlega vinsæla ProV1 golfbolta sem hefur verið í fremstu röð á undanförnum árum.