GolfTV: Samanburður á golfsveiflu Tiger 1997/2015
Tiger Woods hefur gengið í gegnum miklar breytingar á golfsveiflu sinni undanfarin ár. Hann er með nýja sveifluþjálfara og hefur Woods hug á því að leita aftur til „fortíðar“ í áherslum sínum í golfsveiflunni. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá samanburð á golfsveiflunni hjá Tiger Woods frá árinu 1997 og þeirri sem hann er með í dag.