GolfTV: Rory McIlroy leið vel eftir kylfukastið
Rory McIlroy átti augnablik gærdagsins þegar hann dúndraði 3-járninu út í vatn eftir misheppnað högg á 8. braut. McIlory lék á -2 í gær á WGC-Cadillac heimsmótinu og náði að laga stöðu sína aðeins fyrir lokahringina. Hann er samt sem áður átta höggum á eftir J.B. Holmes eða á -1 samtals. McIlroy sagði að kylfukastið hafi bætt líðan hans á þeim tíma. „Mér leið vel eftir að hafa kastað kylfunni en ég missti stjórn á skapi mínu,“ sagði McIlroy í gær.
p>