GolfTV: Ný auglýsing frá Nike – stórstjörnur samankomnar
Rory McIlroy, Tiger Woods og Michelle Wie eru flaggskipin í golfinu hjá Nike fyrirtækinu og þau nota öll nýjustu kylfurnar frá íþróttarisanum. Í þessari auglýsingu koma einnig fram körfuboltahetjan Charles Barkley og Bo Jackson sem er þekktur fyrir að hafa verið atvinnumaður í tveimur íþróttagreinum. Nike Vapor Pro dræverinn er varan sem þessir aðilar telja að geti bætt leik allra og útkomuna má sjá hér fyrir neðan.
Nike Vapor er til í ýmsum gerðum og má þar nefna Vapor Speed, Vapor Flex og Tour-only Nike Vapor Speed sem var sérframleiddur fyrir Michelle Wie.