Sunnudagur 8. mars 2015 kl. 08:52

GolfTV: Mögnuð tilþrif í samantekt frá þriðja hringnum á WGC

Það sáust ótrúleg tilþrif á þriðja keppnisdegi WGC-heimsmótsins í golfi sem fram fer á Blue Monster vellinum á Doral í Miami. Stórkostleg golfhögg litu dagsins ljós og má þar nefna tvö draumahögg ásamt fjölda snilldartilþrifa úr glompum víðsvegar á vellinum. Öll helstu tilþrif gærdagsins má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan. J.B. Holmes frá Bandaríkjunum er efstur fyrir lokhringinn en hann er með fimm högga forskot á Bubba Watson og Dustin Johnson.