Mánudagur 26. janúar 2015 kl. 13:21

GolfTV: Mickelson bjargaði parinu með mögnuðu pútti

Phil Mickelson lék í fyrsta sinn á golfmóti frá því í Ryderkeppninni s.l. haust á Humana meistaramótinu sem lauk í gær með sigri Bill Haas. Mickelson endaði í 24. sæti á -15 samtals og var sjö höggum á eftir Haas. Mickelson bjargaði parinu á par 3 braut á lokahringnum í gær með frábærum hætti. Upphafshöggið á 17. braut fór í grjót utan brautar og boltinn skoppaði út í vatnstorfæru. Mickelson setti púttið ofaní við mikinn fögnuð áhorfenda.