GolfTV: Magnað 300 metra „Happy Gilmore“ dræv
Bryce Harper er þekktur sem hafnarboltaleikmaður hjá MLB liðinu Washington Nationals. Hinn 22 ára gamli örvhenti Harper er greinilega með góða samhæfingu augna og handa – sem er kostur í hans tilfelli. Hann sýnir ótrúlega takta í þessu myndbandi þar sem hann drævaði rúmlega 305 metra með „Happy Gilmore“ tækninni.