Sunnudagur 8. mars 2015 kl. 08:47

GolfTV: Holmes og Johnson slógu draumahöggin á sömu holunni

Dustin Johnson og J.B. Holmes fóru báðir holu í höggi í gær á þriðja keppnisdeginum á WGC-Cadillac heimsmótinu. Þeir slógu báðir draumahöggið á sömu holunni, þeirri fjórðu, og notuðu báðir 7-járnið. Höggin komu með um fimmtán mínútna millibili og er þetta afar sérstakt að slíkt gerist á atvinnumóti.