GolfTV: Hársbreidd frá draumahögginu með 300 metra drævi
Luke Guthrie átti frábært upphafshögg á 17. braut í gær á lokakeppnisdeginum á Waster Management mótinu á TPC Scottsdale vellinum. Þar sló Bandaríkjamaðurinn rúmlega 300 metra upphafshögg og boltinn „kíkti“ ofaní holuna.
Guthrie var ekkert að flækja hlutina í kjölfarið og setti boltann ofaní snyrtilega með fínu vippi rétt utan flatar.