GolfTV: Glæsileg byrjun hjá Matsuyama úr erfiðri stöðu
Hikdeki Matsuyama byrjaði með látum á lokahringnum á Waster Management mótinu í Phoenix. Japanski kylfingurinn fékk örn á fyrstu holuna úr frekar erfiðri stöðu. Boltinn var í boltafari á brautinni en Matsuyama átti ekki í vandræðum með þetta högg eins og sjá má í myndbandinu. Martin Laird frá Bandaríkjunum var með þriggja högga forskot á Matsuyama fyrir lokahringinn og eftir þetta högg munaði aðeins tveimur höggum á þeim félögum.