Föstudagur 30. janúar 2015 kl. 08:21

GolfTV: Bubba „klíndi“ upphafshöggið af 305 metra færi

Bubba Watson getur slegið langt og er í fremstu röð á því sviði. Bandaríkjamaðurinn, sem sigrað á Mastersmótinu á síðasta ári, „dúndraði“ upphafshögginu á 17. braut á TPC Scottsdale vellinum í gær. Þar sló Watson rétt rúmlega 305 metra og endaði boltinn rétt við holuna á brautinni sem er par 4. Tiger Woods var í næsta ráshóp á undanf Watson og hafði hann gaman af þessu höggi hjá Watson eins og margir aðrir.