Sunnudagur 17. maí 2015 kl. 13:00

Buch Harmon: Vinstri höndin í vippum!

Það er mikilvægt að stoppa ekki vinstri höndina í stuttum vippum - segir hinn heimsfrægi golfkennari og þjálfari, Butch Harmon. Þekktustu kylfingar heims hafa notað þjónustu kappans eins og Tiger Woods og Adam Scott.
Í þessu kennsluvideoi sýnir Butch hvað maður á að gera í þessum stuttu vippum sem margir eru í vandræðum með. Góð æfingaaðferð er að taka hægri höndina af kylfunni rétt áður en hún fer í boltann og fylgja eftir með vinstri höndinni í gegn. Uppstilling er hefðbundin eins og í vippum, boltinn aðeins aftar í stöðunni og þunginn meira vinstra meginn.