Föstudagur 24. júlí 2015 kl. 18:49

Axel í fantaformi á Akranesi: „Kann vel við mig á Garðavelli“

Keiliskylfingurinn og Íslandsmeistari í holukeppni, Axel Bóasson, er með tveggja högga forystu eftir tvo daga af fjórum á Íslandsmótinu í höggleik á Akranesi. Axel er í fantaformi og kann alltaf vel við sig á Garðavelli. Hann ræddi við Pál Ketilsson eftir annan hringinn í mótinu.