Fréttir

Svona er vikan hjá íslensku atvinnukylfingunum
Guðrún Brá byrjar í Sviss á morgun.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
miðvikudaginn 8. september 2021 kl. 09:15

Svona er vikan hjá íslensku atvinnukylfingunum

Það er nóg að gera hjá íslensku atvinnukylfingunum í þessari viku.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir leikur á Swiss Ladies Open sem fram fer á Golfpark Holzhausern í Sviss sem er um 5.800 metrar og par 72. Mótið hefst á morgun og lýkur á laugardag.

Guðrún hefur leik klukkan 13.55 að staðartíma á morgun.

Hér má fylgjast með stöðunni í mótinu

Andri Þór Björnsson, Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson leika í Þýskalandi á Big Green Egg mótinu. Mótið fer fram á Wittelsbacher Golfclub sem er um 6.800 metrar og par 73.

Strákarnir hefja allir leik eftir hádegi á morgun. Bjarki leikur með Matteo Manassero sem sigraði fjórum sinnum á síðast áratug á Evrópumótaröðinni, fyrst árið 2010 þá aðeins 17 ára.

Hér má fylgjast með strákunum