Stephen Dodd sigraði á Opna móti eldri kylfinga
Stephen Dodd frá Wales stóð uppi sem sigurvegari á Opna mótinu fyrir eldri kylfinga sem kláraðist á Sunningdale í Englandi í dag.
Dodd endaði á 13 höggum undir pari, einu höggi á undan Miguel Angel Jimenez og tveimur höggum á undan Darren Clarke. Hinn 63 ára gamli Bernhard Langer sem sigraði síðast þegar mótið fór fram árið 2019 endaði í 4. sæti.
Dodd og Jimenez voru jafnir fyrir lokaholuna en Dodd renndi niður 3 metra pútti fyrir fugli eftir frábært innáhögg með 6 járni úr röffinu og tryggði sér sigurinn og sinn fyrsta risatitil.