Hverjir eru í topp 20 á heimslistanum núna?
Eftir sigurinn um síðustu helgi hjá Rory McIlroy komst hann aftur í efsta sætið á Heimslistanum. En hverjir eru þar núna í efstu sætunum?
Í efstu 11 sætunum eru fjórir Evrópu-kylfingar. Auk Rory eru þar Spánverjinn Jon Rahm (5. sæti), Englendingurinn Matt Fitzpatrick (10. sæti) og Norðmaðurinn Victor Hovland (11. sæti).