Fréttir

Guðrún Brá lék annan hringinn á þremur yfir
Guðrún Brá ætti að komast í gegnum niðurskurðinn í Frakklandi.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
föstudaginn 17. september 2021 kl. 14:00

Guðrún Brá lék annan hringinn á þremur yfir

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék annan hring Lacoste Ladies Open á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari.

Þegar nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka leik er Guðrún sem lék á pari í gær einu höggi innan við niðurskurðinn sem miðast við 4 högg yfir pari.

Hún ætti því að vera örugg með að fá að leika lokahringinn á morgun og fá tækifæri til að hífa sig upp töfluna.

Skorkort Guðrúnar:

Staðan í mótinu