Golfið á Ólympíuleikunum hefst á morgun
Keppni í golfi á Ólympíuleikunum hefst á morgun miðvikudag.
Eins og fram hefur komið þurftu Bryson DeChambeau og Jon Rahm að draga sig úr keppni eftir að hafa greinst með Covid 19. Keppni á leikunum verður engu að síðar spennandi og margir frábærir kylfingar skráðir til leiks í karla og kvennaflokki. Styrkleikalista kylfinga á leikunum má sjá hér að neðan.
Árið 2016 var leikið að nýju í golfi á leikunum í fyrsta skipti síðan 1904. Justin Rose og Inbee Park fóru á kostum á síðustu leikum og tóku gullverðlaunin með sér heim.