Fréttir

Fékk þrjá erni á sömu holunni á Hero World Challenge
Viktor Hovland er kominn í sjöunda sæti heimslistans.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
þriðjudaginn 7. desember 2021 kl. 09:04

Fékk þrjá erni á sömu holunni á Hero World Challenge

Það þarf ýmislegt að ganga upp til þess að kylfingar nái sigri í sterkustu mótunum. Það var einmitt það sem gerðist um helgina hjá Viktor Hovland á Hero World Challenge mótinu.

Hann gerði sér lítið fyrir og lék 14. brautina þrívegis á erni í mótinu. Ekki nóg með það heldur fékk hann tvo erni í röð á lokahringnum á 14. og 15. holu. Ótrúlegur kafli hjá Norðmanninum sem er orðinn einn af allra bestu kylfingum heims.

Á síðustu tveimur árum hefur Hovland leikið í 50 mótum og sigrað í fimm þeirra. Hann hefur einungis einu sinni lent í niðurskurðinum og hefur farið úr 93. sæti heimslistans í það sjöunda.