Fréttir

Drög að mótaskrá GSÍ 2022
Það styttist í golftímabilið 2022.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
föstudaginn 10. desember 2021 kl. 08:34

Drög að mótaskrá GSÍ 2022

Golfsamband Íslands hefur birt á vef sínum www.golf.is drög að mótaskrá fyrir árið 2022. Fyrstu mót ársins verða í lok maí og þau síðustu í byrjun september.

Einungis er um drög að ræða og því gætu orðið einhverjar breytingar auk þess sem nokkur mót hafa ekki verið sett á ákveðna velli enn sem komið er.