Fréttir

DeChambeau efstur á World Hero Challenge
Bryson DeChambeau lék frábærlega á öðrum hring Hero World Challenge mótsins og leiðir eftir tvo hringi.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
laugardaginn 4. desember 2021 kl. 17:31

DeChambeau efstur á World Hero Challenge

Bryson DeChambeau lék best allra á öðrum degi World Hero Challenge mótinu á Bahamaeyjum í gær. Hann lék hringinn á 64 höggum og er samtals á 11 höggum undir pari.

Collin Morikawa sem getur með sigri náð efsta sæti heimslistans er í öðru sæti ásamt Tony Finau og Brooks Koepka. 

18 af 20 kylfingum eru undir pari þegar mótið er hálfnað og eiga raunhæfa möguleika á sigri.

Þriðji hringur mótsins fer fram í kvöld.

Staðan í mótinu