Fréttir

Champ sigraði á 3M mótinu
Champ vann sinn þriðja sigur á PGA mótaröðinni í gær
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
sunnudaginn 25. júlí 2021 kl. 22:44

Champ sigraði á 3M mótinu

Cameron Champ sigraði í gær á 3M mótinu á PGA mótaröðinni. Mótið fór fram í Blaine Minnesota.

Champ lék samtals á 15 höggum undir pari og endaði 2 höggum á undan Louis Oosthuizen, Jhonattan Vegas og Charl Schwartzel.

Champ bjargaði pari á glæsilegan hátt á síðustu braut dagsins á meðan þrír næstu menn fengu allir fugl á lokaholunni. Louis Oosthuizen var nálægt því að jafna við Champ þegar innáhögg hans á 18. holu kíkti í holu en vildi ekki ofan í.

Þetta var þriðji sigur hins 26 ára gamla kylfings á mótaröðinni.

Lokastaðan í mótinu