Fréttir

Axel í 16 manna úrslit í Svíþjóð
Axel Bóasson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
miðvikudaginn 6. júlí 2022 kl. 13:21

Axel í 16 manna úrslit í Svíþjóð

Axel Bóassón úr GK leikur á Big Green Egg Swedish Matchplay Championship sem hófst í morgun á konunglega Drottningarhólmsvellinum vestur af Stokkhólmi.

Axel lék við Lukas Lautrup-Nissen frá Svíþjóð í 32 manna úrslitum og vann leikinn 4 & 3. Axel dróst gegn William Nygård frá Svíþjóð í 16 manna úrslitum en leikurinn hófst núna klukkan eitt á íslenskum tíma.

Hinn íslenskættaði Dani, August Thor Høst komst einnig í 16 manna úrslitin þegar hann vann Lucas Augustsson frá Svíþjóð 3 & 2 í morgun.

August leikur við Tobias Eden í 16 manna úrslitum og hófst leikur þeirra núna laust fyrir klukkan eitt á íslenskum tíma.

Staðan á mótinu